Brátt get ég sungið klámvísur

Ef ég kynni eitthvað í Latínu mundi ég eflaust liggja yfir þessum vef og þá sérstaklega drykkjusöngvunum.  Hvað er skemmtilegra en að vera einn fullur heima hjá sé, tónandi dónalegar limrur á Latínu?   Eða ég gæti sungið til elskunnar minnar miðalda ástarsöngva sem hún  mundi ekki botna neitt í.  En fyrst og fremst mundi nördið í mér fá nóg að gera.  Þetta eru einhver rúmlega 7000 handrit og eflaust öll uppfull af kynvillu munka og fólgnum leyndardómum.  Ég yrði ekki lengi að halda í leiðangur að leita hins helga kaleiks.

mbl.is Handritin á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna ind i mellem leynist örugglega Bósasaga, sem er grundvallarrit "fræðigreinar" sem kölluð er kynjafræði. Ritið þykir lýsa á einstakan hátt innsta eðli hins testósteronmengaða hluta mannkynsins, hm. 

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Kreppumaður

Sú bók fæst líka í kilju í öllum bóksölum framhaldsskóla til þess að ýta undir að menn brynni fola sínum í brunnum heimasætra ef ég man textann rétt...

Kreppumaður, 22.10.2008 kl. 20:37

3 identicon

Meðan þú bíður eftir klámvísum á latínu geturðu skemmt þér yfir þeim á íslensku: http://www.visna.net

Gulli (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 19:26

4 identicon

Auðveldara að heimsækja þetta svona:
www.visna.net

Gulli (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 19:28

5 Smámynd: Kreppumaður

Takk Gulli, var búinn að sjá þennan vef og skemmta mér yfir honum. Ég er svo grunnur sjáðu til.

Kreppumaður, 25.10.2008 kl. 03:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband