23.3.2008 | 20:32
Bitra fjölskyldan borðar saman
Við vorum fá. Ég, myndlistamaðurinn og eiginkona hans fatahönnuðurinn, dóttir þeirra og foreldrar mínir. Tónninn var, var eins og í Tsjekov leikriti sleginn með fyrstu setningunni: Viltu afréttara? Ég sagði móðir minni að ég væri ekki timbraður og tók við glasi af víni. Þú lítur þannig út sagði hún og kyssti mig á kinnina. Á ég að hjálpa þér spurði ég þar sem ég stóð fyrir aftan hana í eldhúsinu. Ef þú værir ennþá giftur þá hefði eiginkona þín komið að liði, þú flækist bara fyrir. Ég leit á klukkuna, hálf fimm, þetta yrði langt kvöld.
Mákona mín settist hjá mér við eldhúsborðið. Ertu búinn að kynnast enn einni verðandi eiginkonu spurði hún? Móðir mín snéri sér við, tók sopa og svaraði fyrir mína hönd: Auðvitað, hann er ekki lengi á því? Ég urraði og sagði að þær þyrftu ekki að búast við því að ég drægi oftar konur í kvöldverðaboð með fjölskyldunni, ég vildi ekki að ókunnugt fólk þyrfti að sjá persónur eftir Inoesco verða að holdi og blóði. Það eina sem þú kannt, svaraði mamma, er að snúa útúr og vitna í leikskáld. Ég stakk úr glasinu og fór inn í stofu. Þar sat pabbi og reifst í bróðir mínum fyrir eitthvað sem hann átti að vera búinn að vera löngubúinn að gera. Ég fór niður, kveikti á sjónvarpinu og horfði á Chealsea vinna Arsenal.
Við matarborðið um leið og pabbi hellti í glasið mitt sagði hann: sonur þinn er að verða alveg eins og þú! Heldur að hann geti kjaftað sig og skrifað í gegnum skóla? Ætlarðu að láta það viðgangast? Mamma: Engar fleiri konur, hvers vegna gastu ekki verið giftur? Mágkonan: Hvað gerir þessi kona? Frænka mín: Viltu spila veiðimann? Bróðir minn þagði. Ég: hvers vegna fæddist ég inn í fokkings Tyrone fjölskylduna.
Pabbi: Þú þarft að fara að huga að framtíðinni? Þú getur ekki búið þér og syni þínum heimili og verið í því starfi sem þú ert að fokka í núna? Það slítur þér og er illa launað? Mamma: Hvers vegna gastu ekki verið giftur? Mágkonan: Ætlarðu út á lífið á eftir? Frænka litla: Viltu spila veiðimann? Bróðir minn: (þögn, skóflar í sig matnum). Ég: Ég er alltaf sextán ára!
Loks lauk matnum. Mamma fór að hita kaffi með eftirréttinum. Pabbi settist og bölvaði fréttum. Mágkona mín opnaði tölvuna. Bróðir minn fór á hljómsveita æfingu. Ég stóð úti á svölum og reykti og horfði á regnmistrið hylja Kópavoginn handan við dalinn og hugsaði um áramót og flugelda og kampavín og fólk að skála og mig kyssa systur mína og svo aðra stúlku og allir voru brosandi og vingjarnlegir en ekki eins og hópur af geitungum sem hrekkur upp við að einhver kastar steini í búið þeirra.
Þú drekkur of mikið, sagði pabbi og helti koníaki í glasið hjá mér! Ég saup á því og svaraði: þið hafið nú aldrei reynt að halda áfengi frá mér! Mamma: Hlustaðu á pabba þinn. (Dæsti) Þú hefur aldrei hlustað á pabba þinn og sonur þinn verður eins! Hvernig ætlarðu að eiga við hann þegar hann fer að drekka? Hann sagði í jarðaförinni að hann fengi oft bjór hjá þér, er það satt? Ég svaraði ekki enda ásökunin fullkomnlega út í hött. Skar mér sneyð af köku og horfði á hana eins og hún væri úr grjóti og ég yrði að neyða hana ofan í mig. Og hún yrði um alla eilífð að meltast í maganum á mér, eins og þessi fjölskylda yrði alla eilífð að bergmála skoðanir sínar í höfði mínu. Mér var óglatt.
Og ég greyp tækifærið um leið og mágkona mín sagðist þurfa að fara á annan stað að fá far með henni niður í bæ. Móðir mín gaf mér rauðvínsflösku að skilnaði og sagði: Þú ert orðinn of gamall fyrir páskaegg! En drekk ég ekki of mikið? Svaraði ég. ,,Ef þú vilt hana ekki, þá drekk ég hana!" Ég stakk henni í frakkavasa og kyssti foreldra mína og ætlaði að fara, þá kom pabbi og rétti mér tvær bækur eftir Heinesen með orðunum, ég tók þær frá handa þér. Þú átt svo fjögur, fimm hundruð bækur úti í bílskúr sem frændi þinn vildi að þú fengir. En ég tók þessar frá svo þú gætir fengið þær strax. Frænda þínum þótti svo leitt að þú hættir að skrifa, hann hefur alltaf svo mikla trú á þér. Og ég stóð fyrir utan húsið þeirra og rökkrið var að falla á og við skildum öll hvort annað. Stundum svo vel.
Athugasemdir
Líf í kreppum...
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 20:39
Það væri kannski minni kreppa ef ég hefði verið vistaður í Breiðuvík?
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 20:41
Nei varla, bara önnur!
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 20:46
Ég fengi kannski bætur frá ríkinu? Varla fæ ég bætur fyrir að eiga þessa foreldra?
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 20:49
Spurning hver væri þá bótaskyldur? En varla ertu nú svo á flæðiskeri staddur, forstöðmenn hafa nú einhverjar krónur upp úr krafsinu eða hvað?
Er kannski of mikil hnýsni í persónulega hagi en af hverju hættir þú að skrifa? En ef maður ekki spyr, þá fær maður ekkert svar!
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 21:14
Ég er ágætlega stæður. Þarf ekki bætur alla veganna.
Hætti að skrifa af meðfæddu metnaðarleysi og leti.
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 21:20
Athyglisvert blogg hjá þér. Þegar ég ákvað að hætta að detta í það og lesa bækur fór ég að spila þetta. Er oftast bleik kanína... stundum svartur köttur. Kemur fyrir að ég beri þetta saman við pöbbaröltsdagana. Það trúir mér enginn þegar ég segi að þetta sé svipað súrrealískt og pöbbarölt. Svo segja vinirnir að maður eigi ekkert félagslíf lengur... piff
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 23.3.2008 kl. 22:42
Ég get því miður ekki skipt út bókalestri fyrir bleika kanínu en hins vegar væri stundum gott að hætta að sjá alla þessa bleiku fíla!
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 22:51
Það er því miður ekki hægt að vera bleikur fíll í þessum leik. En það er hægt að vera blár hundur
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 23.3.2008 kl. 22:54
Blár hundur. Það gæti verið ég. En ég íhuga frekar að fara á eyðieyju til þess að losa mig við súrrealísk samskipti.
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 22:59
Ég spilaði þennan leik einu sinni á næturvakt... það var einmitt eitt svona klassískt djammkvöld og allir að djamma nema ég, en þá kom þessi leikur í staðinn!
Kristín Henný Moritz, 23.3.2008 kl. 23:39
Kannski ég ætti að skipta foreldrum mínum út fyrir bleika kanínu og svartan hund? Ætli þau megi ættleiða? Og má ættleiða 36 ára fólk?
Kreppumaður, 23.3.2008 kl. 23:52
Tölvuleikir? Kanínur? Á hvaða bloggi er ég eiginlega?! Spyr enginn spurninganna sem skipta máli??
Hvernig rauðvín gaf mamma þín þér? Hvenær er næsta fjölskylduboð? Eru þau öll svona depressing? Hvort eru foreldrar þínir svona erfiðir...eða þú?
Bleikar kanínur??
Heiða B. Heiðars, 23.3.2008 kl. 23:59
Hún gaf mér Masi. Næsta boð er væntanlega í maí þegar mamma á afmæli ef við teljum fermingu sonar míns ekki með í apríl. Á ekki von á því að hún snúist upp í leikrit eftir O´Neill. Þó maður viti aldrei? En þetta boð var í hressari kantinum. Enda svo stutt að við náðum ekki að drekka okkur í ,,hverjum er hvað að kenna" gírinn!
Kreppumaður, 24.3.2008 kl. 00:03
Ertu búinn að opna flöskuna? Hvað er mikið eftir í henni, ef eitthvað?
Verður boðið upp á rauðvín í fermingunni??
Heiða B. Heiðars, 24.3.2008 kl. 00:06
Það er eftir munnsopi, varla það. Þarf að sætta mig við bjór núna. Veit ekki með vín í fermingunni en ég verð með vasapela til að meika liðið!
Kreppumaður, 24.3.2008 kl. 00:08
Ég fæ bara heimþrá við að lesa bloggið þitt, alltaf leiðinlegt að missa af góðum partýum....Hér í Berlín er því miður ekkert sem kemst nálægt þeirri mögnuðu stemmningu sem skapast í fjölskylduboðunum heima
systir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 10:27
Það er nú þess vegna sem þetta er skrifað þannig að þú vitir af hverju þú ert að missa!
Kreppumaður, 24.3.2008 kl. 15:08
Familjen já ...
gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2008 kl. 16:02
(gleymdi dæsinu)
dæs ...
gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2008 kl. 16:03
Draumur minn er að einhver hugrakkur kvikmyndagerðamaður geri heimildamynd um okkur!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.