25.3.2008 | 15:36
Gestur gerir boð á undan sér
Í desember kynntist ég sænskri stúlku á Sirkús. Þetta var frekar lávaxin, dökkhærð stelpa með stór augu og fallega spékoppa og við skemmtum okkur vel saman í nokkra daga. Svo hvarf hún aftur yfir hafið til Svíaríkis. Á milli okkar gengu nokkrir rafpóstar um allt og ekkert þangað til þeir urðu strjálar og loks virtist kunningsskap okkar sjálfhætt. Þangað til í morgun að ég sá að ég hafði fengið póst frá henni. Hún er búin að vera eina önn í New York og er að velta því fyrir sér hvort að hún megi vera tvær vikur hjá mér áður en hún heldur til Svíþjóðar? Ég veit ekki hverju ég á að svara? Finnst það ekki alveg nægilega góð tilhugsun að fá nánast ókunnuga manneskju inn á heimili mitt í svona langan tíma? Svo er ég enn ekki búinn að gleyma annarri sænskri stúlku sem lagði mig í einelti á slæmu tímabili í lífi mínu og endaði á spítala eftir ítrekaðar sjálfsmorðstilraunir sem höfðu víst eitthvað með mig að gera? En maður á svo sem ekki að leggja allar sænskar stúlkur að jöfnu? Man að þessi sem vill heimsækja mig var lífleg og skemmtileg og átti það til að kyssa mig leiftur snökt á kinnina í einhverjum galsa. Erótískari voru samskipti okkar ekki. En eitt sem ég velti fyrir mér? Hún spurði ekki að því hvort ég ætti kærustu eða væri í sambúð? Hún virðist hafa gert ráð fyrir því að ég væri bara einn með nóg pláss og nægan tíma til að sinna henni? Er ég svona fyrirsjáanlegur?
Athugasemdir
Ég er með tölvupóst frá hollenska vini mínum. Hann er einmitt að spá í hvort hann megi koma í tvær vikur til mín....... Kynntumst 2002 og alltaf haldið sambandi og ég man vel eftir honum.
Get samt ekki gert það upp við mig hvort ég "meika" að hafa hann hérna inná mér í TVÆR VIKUR!!
Heiða B. Heiðars, 25.3.2008 kl. 15:48
Svipað vandamál. Ég óttast að nábýlið yrði til þess að sú sænska mundi gera mig brjálaðan eða ílengjast hérna um óákveðinn tíma. Og hafa af mér Berlínarsukkið með litlu systur.
Kreppumaður, 25.3.2008 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.