26.3.2008 | 15:19
Að vera með bindi
Ég er með bindi í dag. Ég átti von á fólki á fund sem ég hef ekki séð áður og vildi reyna að draga úr ungæðislegu útliti mínu. Í gegnum tíðina hef ég oft lent í því að fólk setur upp einhvern svip þegar það hittir mig í fyrsta sinn og ég les úr svipnum: hvað veit þessi strákur? Samt er ég enginn strákur lengur en ég get virkað sem slíkur. Kannski eru það fötin eða einhvet samspil af útliti og framkomu sem stundum vill gera fólk óöruggt. En það er að hverfa veit ég, aldurinn er smá saman að setja mark sitt á mig og er það fínt. En að vera með bindi (auðvitað var það kannski ekki eftir hefðinni þetta bindi en hvað um það) minnir mig á þá staðreynd að utan fjármálageirans eru karlmenn nánast hættir að vera með hálstau. Kennarar, sálfræðingar, læknar, meira að segja lögfræðingar, þessar stéttir hafa fyrir löngu lagt til hliðar slaufur og bindi. Mér finnst það dapurleg þróun. Ekki fyrir svo mörgum árum sást varla karlmaður á götu án þess að vera með bindi. Ef hann var þá ekki að koma frá þess meira óþrifalegri vinnu. Leiðinleg þróun sem ég vona að verði einhvern tíman endurvakin.
Athugasemdir
Ef ég væri karlmaður þá setti ég upp bindi og reyndi að freista þess að líta út fyrir að vera á mínum aldri. Á við þetta sama vandamál að stríða, ég er stelpuleg, lít út fyrir að vera mun yngri en ég er.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 15:32
Það er reyndar fínt að vera unglegur. Og ég held að ef maður er ,,ungur í anda" þá sjáist það utan á manni.
Ég reyndar lít út fyrir að vera á mínum aldri daginn eftir langt djamm. En því miður, þá er ég yfirleitt ekki að vinna. Og það mundi sennilega enginn taka mark á mér þá, rauðeygðum og baugóttum.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 16:12
Hvaða leiðinlegu þróun viltu endurvekja?
Þið eigið samúð mína alla, fyrir að vera ungleg. Mér fannst ekkert skemmtilegt þegar fólk kallaði fyrrum sambýlismann minn son minn. Missti alla lyst, fannst ég vera barnaníðingur.
gerður rósa gunnarsdóttir, 26.3.2008 kl. 16:17
Það er fínt og ekki fínt. Ég hef einmitt oft verðir spurð hvort ég sé að passa syni mína, beðin reglulega um skilríki og allt það, orðin þreytt á viðbrögðunum: "vá! ég hélt þú værir svona 21 árs!"
Átti um daginn afmæli og flissaði yfir viðbrögðum kennara minna sem ráku upp stór augu þegar að ég sagði þeim aldur minn, bjuggust við lægri tölu augljóslega.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 16:27
Gerður: að karlmenn klæði sig eins og menn en ekki strákar. En það er bara þessi fortíðarþráhyggja í mér. Sjálfur vil ég fá undanþágu til þess að vera strákur!
Ragga: Ég var beðinn um skilríki í ríkinu 28 ára gamall. Og hef einmitt lent í því að fólk haldi að ég sé ennþá svona 29 ára. Hef þó ekki lent í því að fólk haldi að við feðgar séum bræður. Þótt að það væri ekki ólíklegt að það gæti hent.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 16:33
Ég hef oft verið beðin um skilríki orðin þrítug og ég man að upp úr tvítugu þótti mér það þreytandi að vera stelpuleg en ég sagði alltaf við sjálfa mig að ef ég væri enn að lenda í skilríkjaspurningunni þrítug þá væri þetta bara gaman... sem það er upp að vissu, getur verið þreytandi til dæmis ef maður gleymir þeim heima!
Mínir strákar eru svo ungir ennþá, þess vegna heldur fólk að ég sé að passa þá.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 16:41
ég man eftir dæmi fyrir fjórum árum á skemmtistað. Unnustu minni, þá verandi, sem var þá 25 ára var hleypt inn en ég og vinur minn (32 og 34 ára) vorum beðnir um skilríki. Hann var fúlskeggjaður og leit út fyrir að vera veðurbarinn sægarpur. Kynbundin mismunur held ég?
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 16:51
Ég er samt mjög stelpuleg og jafnvel sæt ef ég nenni. Kannski ég sé að fara á vitlausa staði?
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 16:59
Þetta var einhver snobbstaður niður á Lækjagötu, þeir vildu ekki einhverja rokkara en höfðu ekkert á móti leggjalangri stúlku. Fífl.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 17:01
Hlaut að vera!
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 17:11
Þetta var sko ekki Sirkús sálugi. En svona fer þegar maður freistast til þess að fara úr sínu náttúrulega umhverfi á ókunnar slóðir. Bara vesen og mismunun.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 17:16
Hér færðu innherjaupplýsingar úr bankageiranum...
Undirritaður hefur unnið í honum frá aldamótum, hjá nokkrum stofnunum og það eru bara einstaka stuttbuxnastrákar sem eru með bindi ef þeir eru ekki á leið að hitta kúnna eða á annan hátt vera sýnilegir opinberlega.
zazou (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:11
Það eru allir hættir að vera með bindi. Best að ég taki það upp!
Kreppumaður, 27.3.2008 kl. 13:44
Ég hef ekki verið spurð um skilríki síðan ég var 16 ára. Eða jafnvel fimmtán.
gerður rósa gunnarsdóttir, 27.3.2008 kl. 20:17
Ég var aldrei spurður fyrr en ég var fyrir löngu komin með aldur til þess að versla í vínbúðinni á Grund, svona 25-26 ára. Þangað til hef ég víst verið ellilegur?
Kreppumaður, 27.3.2008 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.