26.3.2008 | 20:54
Um bók
Búinn að eiga 4 tíma samtal við ritstjórann minn um væntanlega skáldsögu. Ég þarf að endurskrifa bókina alla veganna tvisvar segir hún. En þó án þess að ég glati því sem er í bókinni, að fólk geti grátið yfir henni, yfir hverri blaðsíðu, hverri málsgrein...
Ég vissi ekki að ég hefði þessi áhrif?
Og það besta er: ég sendi þessa bók aldrei á neitt forlag, vinkona mín sá til þess. Og sér til þess að henni sé ritstýrt og hún útgefinn. Ég gerði ekki neitt nema að skrifa. Það má segja að þessi bók hafi verið dreginn út úr mér með glóandi töngum , í dimmum kjallara meðan tunglið óð í skýjum. Enda þegar hún verður útgefinn, þá mun nafn þessarar þolinmóðu konu sem sá til þess að ég fór aftur að skrifa vera eina nafnið á þakkalistanum.
Þá getið þið hatað hana ef bókin er vond!
Athugasemdir
Spennandi!
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 21:01
Ég veit ekki? Búinn að vera svona dagur, allir vilja verk eftir mig! Skrítið. En höfundalaunin fyrir skáldsöguna tryggja gott frí í Berlín hjá litlu systur.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 21:06
Þá skulum við vona að þetta gangi upp. Væri alveg til í að lesa eftir þig skáldsögu.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 21:31
Búið að handsala verkið. Bar ég á eftir smá endurvinnu. Það er meira að segja búið að hugsa fyrir kynningunni.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 21:33
Mjög spennó! Ég kaupi bókina um leið og hún kemur út
Heiða B. Heiðars, 26.3.2008 kl. 21:49
Þú átt aldrei 4000 kall á lausu!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 21:50
Hey! Ekki stefni ég á að vera sveltandi rithöfundur í dimmum kjallara!
Slæ einhvern um lán :)
Heiða B. Heiðars, 26.3.2008 kl. 21:53
Rólegur, átt eftir að endurskrifa og endurskrifa og jafnvel endurskrifa! Leggðu nú rauðvínsflöskuna til hliðar, bloggaðu minna og skrifaðu meira.
ritstjorinn (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 21:56
Heiða: Kjallarar eru ofmetnir, og ritstörf, sjá komment að neðan.
Ritstjórinn: Hvernig í andskotanum fannstu bloggið mitt!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 21:59
Skiptir máli hvernig ég fann það? Ég hef einsett mér að fylgjast vel með þér næstu vikurnar. Hafi ég verið ákveðin í því áður en ég las bloggið er ég enn ákveðnari eftir lesturinn.
Hvað er með allt þetta rauðvínstal?
ritstjorinn (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:04
Sko við erum búin að handsala samning, svo hann stendur. Og ég er ekki Dagur, ég er ekki Steinar... Ég er bara það sem þið eigið skilið!
En hvernig fannstu bloggið?
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 22:11
Ég var bara að skoða blogg og rakst á þitt. Ekki erfitt að leggja saman tvo og tvo. Rauðvín, ljóðrænn texti og þunglyndi í bland við smá hroka. Auðvelt
ritstjorinn (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:16
Iss, þú ert ruglast á höfundum. Ritstjórinn minn hefur ekki hundsvit á rauðvíni og ljóðrænu, þú ferða höfundarvillt.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 22:19
Ertu að reyna að fæla mig frá verkefninu með því að vera dónalegur? Bring it on! Ég er ekki að fara neitt
ritstjorinn (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:33
Annars mæli ég með góðum nætursvefni. Mikil vinna framundan. Góða nótt
ritstjorinn (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:36
Nú þegar á ég leiðinlega móðir, ég vissi ekki að ég hefði skrifað undir samning um að eignast aðra verri. En þú getur bara hringt í mig á miðnætti til að svæfa mig, elskan, ef þú vilt ekki að ég vaki of lengi. Ég fíla það þegar konur á fimmtugs aldri breið yfir mig fyrir svefninn.
Kannski ég finni mér annan útgefanda sem er ekki alveg svona persónulegur!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.