26.3.2008 | 21:31
Uppgjöf - leikrit, bækur!
Hringdi í bæði leikarann og leikstjórann sem hafa leikrit eftir mig undir höndum og sagði það sama við þá báðu: ég er til í að endurskrifa verkinn ef þú vilt setja þau upp! Báðir tóku því fagnandi.
Og ég endaði samræður við báða á því að segja: ég gefst upp, ég gef mig örlögunum á vald, ég verð fokking leikskáld ef þið viljið! En þá fáið þið líka leikskáld sem er pain in the ass. Ég mun anda ofan í hálsmálið á þér og verða reiður um leið og þú breytir stöðu sem ég hef skrifaði, um leið og þú breytir snertingu sem ég hef skrifað, tilliti sem ég hef skrifað. En ef þú sættir þig við það, verð ég þinn.
Báðir, í sitthvoru lagi, sættu sig við allt sem ég sagði.
Ég gafst upp í dag. Fyrir skriftum. Og stefni á þau mið að verða leikskáld og rithöfundur, þótt að ég sé hvorki ungur né efnilegur. En eitthvað fólk úti í bæ mun sjá um að koma mér á framfæri. Eða draga vagninn sem ég er. Til þess eru ritstjórinn minn og þessir leikstjórar.
Athugasemdir
Bara allt að gerast, bók, leikrit og læti. Glæsilegt.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:38
Það eru allir að verða geðveikir Ragga. Allir eru orðnir örvæntingarfullir eða eitthvað? Það er ekki eins og ég hafi beðið um þetta?
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 22:40
Alltaf gaman að fara í leikhús sko.
Gunnhildur Ólafsdóttir, 26.3.2008 kl. 22:43
Sköpunarþörfin er sterk, sterkari en flest annað og þú felur þig ekki svo léttilega fyrir henni, trúðu mér, ég hef reynt.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:47
Iss, meira peninga þörf. Frekar en hitt. Og þó. Hvað veit ég? Veit bara að síðustu vikur hefur fólk verið að nauða í mér um verk og ég gafst upp!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 22:51
Ef enga trú á að þú gerir það bara afþví að þú ert beðinn um það.
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 22:58
Nei , af því ég er píndur til þess!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 23:03
Aha...
Ragga (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 23:06
Jamm og það er búið að banna mér að drekka fram til 15. apríl, ég víst að vera að skrifa.
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 23:08
Til hamingju með þetta kallinn; kíki á stykkið eða bókina þegar þessu verður sleppt...
Lárus Gabríel Guðmundsson, 26.3.2008 kl. 23:41
Iss, þetta verður flopp Lárus, flopp!
Kreppumaður, 26.3.2008 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.