Ófögur sjón

Útlendingar höfðu það sér til skemmtunar að horfa á kvenkyns róna liggja í eigin spýjupolli fyrir utan 10-11 þegar ég kom arkandi heim frá vinnu.  Þegar útlendingarnir koma heim minnast þeir reykjavíkur sem borg róna og veggjakrots.  En það er best að gera ekki neitt í þessu.  Leyfa bara rónunum að betla og ónáða fólk á fjölförnum götum og krökkum að valda tjóni á byggingum fyrir milljónir í skjóli myrkurs.  Nema að það sé til fólk sem hefur smekk fyrir svona skreytingum og svona fallegu mannlífi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Krotið er þó skömminni skárra þökk sé Góðverkasamtökunum Betri Bær... svo maður reyni að sjá eitthvað jákvætt.

Ragga (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 18:32

2 Smámynd: Kreppumaður

Já kannski, en bænum hefur hrakað mikið og hratt undanfarið.  En þetta er ekki alsæmt, það eru ennþá til fallegir blettir.

Kreppumaður, 27.3.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband