We are all on drugs

Þessi setning er búinn að vera að angra mig í allan dag:  we are all on drugs!  Ég kem því ekki fyrir mér hvort að þetta sé brot úr texta, úr bók eða kvikmynd eða bara eitthvað sem heili minn hefur tekið upp á því hjá sjálfum sér að líma fyrir augum mér.  Og ég hugsaði um þetta þegar ég gekk Laugaveginn heim úr vinnu og horfði á fólkið sem ég mætti.  Flestri litu illa út eins og þeir væru pöddur að skríða undan steinum.  Það var kalt og fólk að flýta sér.  Mér leið eins og ég ætti hvergi heima.  Stæði fyrir utan allt saman.  Tæki ekki þátt í neinu.  Eins og ég væri svo dópaður að einungis litróf sólageislanna skiptu mig máli.  Ég kom við í Mál og menningu og keypti mér bók.  Um hákarla.

Kom svo heim og mundi allt í einu eftir því að ég hafði ekki skoðað myndir sem ég tók um daginn af mér og systur minni þegar hún var á landinu.  Þær voru nokkrar mjög góðar.  Systir mín er óvenju fögur ung kona.  Og ég leit út eins og berklaveikt skáld sem hefur verið krakaður upp úr sjónum eftir að hafa drekkt sér vegna skóleysis.  Kannski eru eiturlyfin að blekkja?  Held nefnilega að það sé staðreynd að allir séu á dópi.  Bara kannski ekki uppáskrifuðu frá læknum, kannski ekki bara keyptu í skúmaskotum skemmtistaða?  Við erum öll á einhverju sem fær okkur til þess að tikka, til þess að fara út á meðal fólks og sinna öllu því sem við þurfum að sinna. 

Ég þekki mann sem skrifaði margar bækur á prelúdíni.  Hann var ekki fyrr búin með eina en hann byrjaði á þeirri næstu.  Þessar bækur náðu því aldrei að komast til útgefanda.  Hann tikkaði á því að skrifa til þess að skrifa.  Náungarnir á hæðinni fyrir neðan mig virðast vera í sama mót steyptir og þessi ágæti höfundur margra óúútgefinna bóka, amfetamín og rapp heldur þeim vakandi og býsna ánægðum heyrist mér í augnablikinu.  En sem betur fer eru ekki allir háðir því sem er örvandi.  Sumum nægir að vita að það hafi hlutverki að gegna í lífi annarra.  Ég læt mér nægja það óvænta.  ég veit þegar ég vakna að á hverjum degi sé ég eitthvað eða það hendir mig eitthvað sem ég bjóst ekki við.  Dagarnir eru sjaldan innihaldslausir og gráir.  Öfugt við það sem ég held að sé á hæðinni fyrir neðan mig.  Sama lagið spilað aftur og aftur í botn og miðað við ruslið - sami bjórinn drukkinn á hverjum degi.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Weezer átti þetta lag.

Ragga (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 19:56

2 Smámynd: Kreppumaður

Ég veit, googlaði það en get ekki sagt að ég hafi munað eftir laginu en einhvern tíman hefur það eða titilinn samt smeygt sér inn...

Kreppumaður, 28.3.2008 kl. 20:09

3 identicon

Weezer er einhverra hluta vegna á ipodinum mínum, skil ekki alveg afhverju en það kemur fyrir að lag með þeim byrjar ef ég set hann á shuffle... ég spóla alltaf yfir þau... og nú hljómar þetta lag í hausnum á mér, takk!

Ragga (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 20:24

4 Smámynd: Kreppumaður

Ekkert að þakka.  Hlustaði á Weezer 93 eða eitthvað og hef eiginlega ekki getað gert það síðan það sumarið.  En það er merkilegt hvað hlutir komast bakdyra megin inn, þótt að maður streitist á móti!

Kreppumaður, 28.3.2008 kl. 20:34

5 identicon

Ég viðurkenni að ég fæ netta skemmtilega nostalgíu við sweater song, það er allt og sumt.

Ragga (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 20:44

6 Smámynd: Kreppumaður

Það lag og Buddy holly lagið minna mig á sumarið ´93, sérstaklega nótt sem ég var látinn vakta svið fyrir tónleika.  Það var merkilega löng og leiðinleg nótt með Weezer (félagi minn) í botni.

Kreppumaður, 28.3.2008 kl. 20:52

7 identicon

Oh já og það líka, þeir eiga bara tvö góð lög.

Ragga (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 21:05

8 Smámynd: Kreppumaður

Þeir eru leiðinda band.  Og vont að af öllum að þeir hafi klínt sér í hausinn á mér, arrrrrg!

Kreppumaður, 28.3.2008 kl. 21:12

9 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Held að allir eigi sér sitt dóp. Líklega innbyggt til að gera mann háðan lífinu, eða einhverju sem er í því - til að maður nenni að lifa.

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.3.2008 kl. 18:47

10 Smámynd: Kreppumaður

Það er mín skoðun líka.  Eitt hvað röss sem fær mann til þess að nenna að draga andann!

Kreppumaður, 29.3.2008 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband