Svo djúft inní þér...

Ég er að hugsa um að fara út á svalir og reykja eða hengja mig.  Mér er sama hvort verður.  Ég er of drukkinn til þess að eiga val.  Ég er orðinn of gamall til þess að eiga nokkurn möguleika á öðru en aðrir stýri mér...
 
Hækka í botn, gamla plötu síðan ég var 18 ára og hún 9 ára og hafði ekki hugmynd um að við mundum hittast.  Ekki frekar en ég átti von á því að verða þrítugur.  Ég hélt alltaf að eiturlyf og áfengi mundu enda skynjun mína löngu fyrr.  En ég er hér ennþá.  Fáum til gagns.
 
OG eins og segir í ælaginu og síterar þá Eugene O´Neill:  Long days journey into/long nights journey out/knee deep so deep whitin you/I kept and keep whitout...
 
En ég er ekki lengur átján ára.  Hún er ekki átta ára.  Ég er orðinn svo fullur.  Svo dapur.  Og líkist alltof mikið Ian McCulloch með vagninn sinn.  Það er allt í nótt.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jæja, allavega ertu ad flytja frá Reykjavík. Þú átt ekki eftir ad sjá eftir því.

Johnny (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 04:10

2 identicon

Nei nú er ég farin að hafa af þér verulegar áhyggjur maður!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 08:21

3 Smámynd: Gunnhildur Ólafsdóttir

Heyrðu minn kæri - hættu nú! Þú veist alveg hvað þú hefur til brunns að bera!

Gunnhildur Ólafsdóttir, 25.7.2008 kl. 23:22

4 Smámynd: Kreppumaður

Hvað eigið þið við eiginlega?

Kreppumaður, 26.7.2008 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband