26.7.2008 | 03:52
Fokking...
Stundum undir morgunn. Þegar allir sofa. Líka fuglarnir. Líka dauðinn.
Og ég get ekki legið á koddanum. Og ég finn hvernig heitur líkami hennar smitar mig með svita. Og ég finn að drukknar æðar mínar slást frá hæl og upp í heila.
Og ég finn...
Þá:
Hugsa ég um hana.
Athugasemdir
Er ekki einn einasti álitlegi kvenmaður þarna í þessari sveit?!
Heiða B. Heiðars, 27.7.2008 kl. 20:39
Segi það - ég hélt að þú værir að druslast þetta þér til yndisauka en ekki eingöngu til volæðis?
Gunnhildur Ólafsdóttir, 27.7.2008 kl. 21:54
Hvað er eiginlega með þig maður? Í hvað ertu að breytast?
Hvernig var það aftur dastu ekki af einhverri þúfu þarna um daginn, höfuðhöggið hefur þá líklega verið alvarlegt!
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 22:22
Jæja dramakall, hvenær kemurðu aftur til sjálfs þín?
Svanur Gísli Þorkelsson, 28.7.2008 kl. 16:43
Wow! Minn greinilega aðeins að hressast... svarta síðan orðin appelsínugul
Heiða B. Heiðars, 29.7.2008 kl. 19:04
Já vá - aldrei hélt ég að þú af öllum myndir go orange! Smá glæta..
Gunnhildur Ólafsdóttir, 29.7.2008 kl. 20:18
Mér fannst fyndið að mín síða væri appelsínugul. Þetta er ennþá fyndnara!
Ragga (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 22:13
Nei þetta er bara mogginn, mín varð líka orange! Svo ekki minn litur!
En nei engin merki um lífsmark hér.
kveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 22:56
Jæja hlaut að vera! Já hér er allt steindautt! Ætli hann sé núna endanlega fallinn í svartsýnis almættið! Maður getur ekki annað en spurt sig.
Gunnhildur Ólafsdóttir, 29.7.2008 kl. 23:03
Já maður spyr sig, hvaða svaka kreppa er þetta?
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 23:39
Eitthvað andlegt mók sem átti líklega að skilja eftir á mölinni - en er ekki frá því að það hafi aukist ef eitthvað er eftir að til fjalla var komið?!
Gunnhildur Ólafsdóttir, 29.7.2008 kl. 23:52
Kreppumaður stendur alltaf undir nafni
maður veit varla hvort maður eigi að hlæja eða gráta
en samt - gaman að lesa þessa prósa.....
kv. Mel sem er búin með kreppukvótann og yfirleitt asnalega glöð
en eftir á að hyggja þá samdi ég alltaf mest í þunglyndinu??? Ætli hamingjan geri mann í alvörunni heimskan?
Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 00:17
Hahaha...það hlaut að vera!!!
Ég sem hélt að appelsínan væri tákn um sólina í hjarta kreppumannsins! :)
Sýnir bara hvað ég er vitlaus :)
Heiða B. Heiðars, 30.7.2008 kl. 00:17
Já ég var líka svona blind Heiða. Að okkur skyldi hafa dottið það í hug að það væri orðið bjartara yfir sjálfum kreppukalli...úff!
Gunnhildur Ólafsdóttir, 30.7.2008 kl. 00:38
Kannski sýnir það bara hvað við erum bjartsýnar og vongóðar.... ekki hvað við erum blindar :)
Eftir að þamba bjór til að kæla mig niður í hitanum í Reykjavík er ég svo....jákvæð ;)
Heiða B. Heiðars, 30.7.2008 kl. 00:44
Þetta er að breytast í eitthvert kerlingablogg - angar eins slor.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 12:56
Ekkert nýtt að Kreppumaður njóti kvenhylli :)
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 13:33
Hættu að vera svona ástfanginn og komdu til sjálfs þíns!
zazou (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 22:43
Hvar ertu Kreppi?
Svanur Gísli Þorkelsson, 8.8.2008 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.