Drukknaðir sjómenn

Ég er búinn að standa á svölunum í allt kvöld og reykja og drekka vín.  Bara brýr og kirkjuturnar fyrir framan mig og þessi forna dimma.
 
Núna liggur hún fyrir innan og sefur og snýr í mig baki og ef ég lít við get ég séð hana svo brúna með húðflúðin á hryggnum og far eftir bikinnibuxurnar svo rassinn er svo einkennilega hvítur í tunglsskininu og hjartað í henni slær bakvið rifbeinin. 
 
Hún snýr sér við og umlar.  Dökkt hárið úfið yfir hvítum koddanum. 
 
Og fyrir neðan svalirnar safnast þeir saman, sígarettustubbarnir, og ég er orðinn drukkin og í fjarska slær dómkirkja og einhver helvítis fugl gefur frá sér hljóð sem minnir mig á kveinin í drukknuðum sjómönnum.  
 
Man þegar við gengum upp að þessu litla græna vatni og hún hafði raðað kertum í kringum það og allir hólarnir í nágrenninu voru svartir og örfoka og við sátum á sitthvorum steininum og drukkum vín úr plastglösum með blómaminnstri og hún setti mér þessa úrslitakosti - að fylgja sér eða gleyma...
 
Og í nótt meðan við, í 2500 km fjarlægð frá þessum polli, leiddumst í gegnum garð með sölnuðum laufblöðum fallandi í snemmbúnu hausti og fjórar stjörnur sem virtust greypast í augu hennar sleppti hún taki handar minnar og hvíslaði:  hvert stefnum við Þórhallur?  
 
Afhverju ekki til baka, svaraði ég?  Og varð hugsað um nóttin þegar hún kom akandi í gegnum þoku og gömul tár til þess að finna mig...
 
,,Til bak til jökla og svartra sanda eða til baka til fokkings Akureyrar?"  Svarði hún? 
 
Og við staðnæmdumst og snertumst og kysstumst og slepptum hvort öðru og hún draup höfði og við vorum sveitt og rök eftir veru á veitingarstað og rauðvínsdrykkju og við þögðum uns hún varla bærði varirnar en ég nam það sem hún sagði:  förum, þessi staður er ekki fyrir okkur!
 
Og nú mun okkur bráðum skola hingað, eins og drukknuðum sjómönnum skolar á land.  Ekkert nema kjötlausir skrokkar í dimmunni. 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flestu átti ég nú von á öðru en að rekast á þig á lífi hér inni :)

það er svo kannski hægt að deila um "á lífi" partinn !

Hvað um það, gott að sjá þig og að þú ert sá sami kreppumaður og áður!

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 09:47

2 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Tregi, sígarettur, vín og konur.  Hvert sem þú ferð þá delur hún í huga þér

Ísland sem þú veist ekki hvort þú átt að elska eða hata. 

Fjandinn hafi það þú ert góður penni

Lilja Kjerúlf, 19.8.2008 kl. 14:41

3 Smámynd: Kreppumaður

Takk fyrir að muna eftir mér.   Finnst ég allt í einu mjög sérstakur.

Kreppumaður, 20.8.2008 kl. 05:04

4 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Ja það er ekki vandi að muna eftir góðum rithöfundi

Lilja Kjerúlf, 20.8.2008 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband