Fokkings Hólmavík

Fyrir neðan svalirnar skjótast rottur á milli ruslatunna og ef ég beygi mig næstum klæðalaus yfir handriðið get ég séð áfengisdauðan mann liggja í eigin ælu, tólf metrum fyrir neðan mig.  Á morgun förum við heim til Íslands til að taka þátt í Menningarnótt og svo aftur út og svo, síðar aftur heim í snjó og storm og til norðurljós og gulavita við hafnarminnið þar sem við ætlum að búa í vetur - frá desember!
 
Og hún sefur og lakið yfir henni er hvít og yfir henni er þessi leiðinlega eftirprentun af verki eftir Gustav Klimt og ég fer að vekja hana núna því að við erum að fara héðan út hitanum í kuldann og til einskins að mér finnst en ég er að hugsa um kvöldið okkar í Hólmavík sem var líkt og eftirfarandi myndband, alltof vel klædd kona á bar með sveitavörgum sem flykktust að henni og vildu berja mig eða dansa við hana.
 
Þannig gengur það!
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kona? Er þetta ekki karlmaður?

Ragga (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 11:16

2 Smámynd: Kreppumaður

Jamm það hélt ég líka!  En erum ekki að tala um stúlkuna mína núna, vonandi ekki held ég...

Kreppumaður, 21.8.2008 kl. 03:51

3 identicon

Jú, ég bara gat ekki annað séð en karlmanninn í þessari. Blindaðist.

Ragga (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband