4.9.2008 | 07:36
Ég - Barbara!
Lífið komið í fastar og rólegar skorður.
Og líka komin nettenging hérna svo ég get setið í haustblíðunni úti á svölum og bloggað, þegar ég er ekki of drukkinn til þess. Kannski ég byrji á því á morgunn ef einhver hefur áhuga?
Efast samt um það, því að mín sterkasta hlið hefur verið að lýsa angist og eymd en ekki einhverri helvítis hamingju og ástaratlotum. Guð, ég gæti hæglega breyst í Barböru fokkings Cartland!!!
Ég er farinn inn að setja í mig permanet og lita hárið bleikt.
Athugasemdir
Ég verð nú að játa að ég hef ekki lesið bloggið þitt um tíma, enda hvarfst þú mér sjónum um stund. Hvar hefurðu haldið þig og hvar ertu núna? Settu bara í þig permanent permanent. Þá þarftu ekki alltaf að vera að standa í þessu. Og þú þekkist þá á krullunum. kv. (Eða bleiku slæðunni).
Bergur Thorberg, 4.9.2008 kl. 08:45
Sé þig alveg fyrir mér bleikan...
eða nei!
Ragga (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 08:50
Þú Barbara, það væri þá loksins komin ástæða til að lesa hana!
kveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 15:01
Farðu nú að drífa þig á mölina og þar með lífga upp á tilveru okkar borgarbúa! Þú ert kossemír í ruglinu þarna. Meir en hér!
Gunnhildur Ólafsdóttir, 5.9.2008 kl. 00:16
Gamli!! Ég sá þig ekki á Ölstofunni kvöld. Ég lifði það nú samt af. Með hörmungum. Enda drukkinn..... eins og þú verður stundum......og ég ....
Bergur Thorberg, 7.9.2008 kl. 23:22
Póe Tíkin er jafn fjarri Barböru og Mccain forsetaembættinu. Haltu þig við eymdina, kvölina og hina eilífu nýrómantík. Það er samt algjör óþarfi að hafa umfjöllunina eins og veður í Færeyjum ætíð...nema líf manns sé þannig náttúrulega.
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.9.2008 kl. 00:05
Ég vil fá kort!!!
Heiða B. Heiðars, 15.9.2008 kl. 22:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.