27.9.2008 | 21:44
Allt er dimmt
Fyrr í kvöld kom ég upp á efri hæðina sem hún er búin að breyta í vinnustofu og horfði á hana hulda dökku hári grúfa sig yfir blöð, sitjandi í stellingu sem ég veit að getur ekki verið þægilega til lengdar með penna í munninum og annan í hnút í hárinu, rissandi á hvítt blað. ,,Hvað ertu að teikna" Spurði ég? Hún svaraði ekki, tónlistin í botni. Ég gekk að svölunum og horfði út, nágrennið horfið í þoku. Velti því fyrir mér að fá mér að reykja en hætti við. Helti mér rauðvíni í glas. Hún leit upp og ég spurði hana aftur hvað hún væri að krota. ,,Brúðakjóla" Svaraði hún. Og mér svelgdist á og frussaði rauðvíni á hvítu skyrtuna mína. Hún hló og sagði: þeir eru á konur sem eru 185 á hæð og 40 kíló, ekki mig. Mér létti en ropaði út úr mér: Mér leiðist að hanga og horfa á þig hanna. ,,Skrifaðu" sagði hún og hvarf ofan í myndina. ,,Ég nenni því ekki!." Farðu þá að blogga, stakk hún uppá! Og það geri ég núna. Af eintómum leiðindum yfir því að hún þarf að ljúka þessari tískulínu sinni fyrir apríl og ég er hálfgerður vikapiltur á þessu heimili þangað til. Hálfgerður húskarl með engin verkefni. Svo ég er komin aftur. Engum til gleði og fáum til skemmtunar. Núna er allt orðið dimmt.
Athugasemdir
Velkominn í myrkrið.
Bergur Thorberg, 27.9.2008 kl. 21:50
Elsku dramadrottningin mín:) Ég hlýt að vera dáin og komin til himna! Var að enda við að horfa á heila bíómynd um SKÓ!!
Heiða B. Heiðars, 27.9.2008 kl. 21:57
Myrkrið er gott,
Þín hefur verið saknað, en það veistu og ég er eiginlega á því að þú gerir þetta af ásettu ráði..........
kveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 00:20
Ég er löt dramadrottning en mér sýnist ég vera kominn aftur til bloggheima þar sem einhver kvenmannsbelgur hefur bara 4 mánuði til þess að hann einhverja tískulínu sem er þegar seld og ég flækist bara fyrir. Lofa því að vera mikið fullur, mikið heimskur, mikið að fara á taugum yfir sjálfum mér. Svona eins og meðal Woody Allen mynd.
Kreppumaður, 28.9.2008 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.