Bloggsendiherra

Af hverju datt engum í hug að útnefna mig bloggsendiherra á þessum auma stað sem ég dvel núna á?  Ég hefði orðið svo verðugur fulltrú i þjóðarinnar og sérstaklega hins kvartandi manns á mbl.is!  Eins og ég lít út núna, úfinn í allt of stuttri hvítri skyrtu og guðdómlega timbraður - að venju - yrði ég svo glæsilegur fulltrúi að mann mundu ósjálfrátt hugsa til Borisar Jeltsín þegar ég mundi mæta á svæðið!  Og það er nú ekki leiðum að líkjast (nema í útliti).
 
Ég næ ekki neinu sambandi við þessa konu sem ég rekst stundum á í þessu alltof stóra húsi.  Hún er svo önnum kafin þessa dagana að ég hef það á tilfinningunni að og ég pakkaði ofan í tösku og léti mig hverfa þá tæki hún ekki eftir því fyrr en eftir svona viku.  Ég er að hugsa um að fara og elda ofan í okkur eða opna flösku af hvítvíni og drekka mig fullann af tómum leiða yfir bók, bloggi eða útsýninu yfir Santa Croce.

mbl.is Fyrsti sendiherra leiklistar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hann lifir!

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 12:10

2 Smámynd: Kreppumaður

Já ennþá...  En það gæti nú breyst eins og allt annað.  ég gæti fengið peningaskáp í hausinn eða eitthvað af þessum kirkjuturnum fallið yfir mig.  Maður veit aldrei.

Kreppumaður, 28.9.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband