28.9.2008 | 12:31
Þórbergur þeirra Bandaríkjamanna
Mikið er nú gott að þeir fyrir vestan hafa nú eignast sinn Þórberg. Reyndar nokkuð við aldur miða við óléttu meistarans en eflaust er þetta svo mikill snillingur að hann fer að skríða um gólf á fjórum fótum og hripa niður doðrant á ungbarnamáli. Og móðgi Hitler í bréfi. Hugsanlega að hann haldi líka dagbók yfir sjálfsfróun? Jafnvel að hann skauti í tunglsljósinu undir jökli og láti sig dreyma um hvít segl við sjóndeildahring? Nú ætla ég að leggja þetta nafn á minnið og bíða spenntur eftir því að Pippen umbreyti bókmenntum í vesturheimi, því af þeim hef ég haft mikinn leiða hin síðustu ár. Þessi maður er höfuðsnillingur Bandaríkjanna. Ég vildi að ég væri hann.
![]() |
71 árs karl ófrískur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.