28.9.2008 | 19:01
Kvöldstund
Rökkrið er skollið á. Við settumst út á svalir og drukkum hvítvín og horfðum yfir torgið og á Santa Croce kirkjuna. Á hæðinni fyrir neðan okkur var feit og sveitt kerling frá Senegal að blaðra í símann og var svo hávær að ég minntist helvítis Pólverjanna í vor og varð að kalla upp í eyrað á verðandi frú Kreppu til þess að yfirgnæfa hávaðann. Ef hún hefði ekki verið svona hávær hefði þetta verið mjög rómantísk stund, kirkjan falleg í rökkrinu, fátt fólk að læðast yfir torgið eins og mýs sem skjótast um á eldhúsgólfi, einn bíll rann hjá...
Svo færðist kerlingin öll í aukana og brátt var hún orðin svo hávær að fólk var farið að staðnæmast fyrir neðan húsið og góna upp á svalirnar hjá henni. Við færðum okkur inn og byrgðum hurð og glugga. ég virðist alltaf eignast nágranna sem framleiða óhljóð. Ætla að sætta mig við þau örlög.
Núna sit ég við tölvuna og horfi á hana bogra yfir blöðunum. Hún er í fallegum silkikjól. Dökkur lokkur fellur á hálsinn og húðin er bronslitið í þessari birtu. Og ég er að hugsa um að sitja bara hérna og horfa á hana og hvernig hún brosir öðru hvoru á meðan hún vinnur og ekki hlusta á tónlist heldur bara á skrjáfið í pennanum að renna yfir blaðið...
Athugasemdir
Ég skrúfa niður í sjónvarpi og útvarpi, slekk á tölvunni og öllum heimilistækjum og segi öllum á heimilinu að halda kjafti. Geng inn í svefnherbergi og tek með mér skrjáfið úr pennanum frá Santa Croce.
Bergur Thorberg, 28.9.2008 kl. 19:43
Mikið er gott að þú ert ekki á þessu heimili því að ef mér yrði sagt að halda kjafti - mundi ég blogga þrefalt meira - engum til skemmtunar. Vona að penna skrjáfið haldi samt ekki fyrir þér vöku!
Kreppumaður, 28.9.2008 kl. 19:48
Verðandi frú Kreppa........
Þetta skrjáf er sem vögguljóð.......
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 20:12
Verðandi frú Kreppa (hér eftir aldrei kölluð annað) er líka að svæfa mig með þessu kroti. Ég er að hugsa um að fara út á svalir og hlusta á þá SeneGÖLNU hrópa í símtækið sitt!
Kreppumaður, 28.9.2008 kl. 20:26
Ertu í Florence af öllum stöðum?
Bergur Thorberg, 28.9.2008 kl. 21:19
Flórens er einmitt borg fyrir sífulla fagurkera og auk þess þunglyndislegur þokki sem svífur yfir þökunum hérna... Eða kannski er ég bara orðinn fullur?
Kreppumaður, 28.9.2008 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.