29.9.2008 | 18:49
Allt farið til fjandans!
Það má ekki líta af þessu landi í nokkrar mínútur án þess að allt fari til fjandans. Ef ég er ennþá læs og skil fréttirnar af ástandinu rétt þá er einhver svartasta kreppa skollinn á í heimalandi mínu og ég fjarri góðu gamni. Sé það eins og svarthvíta heimildarmynd frá því fyrir stríð: ég með sixpensara og í slitnum jakkafötum í langri röð að bíða eftir súpuskál frá Hjálpræðishernum... Og svo niður á höfn að reyna að snapa nokkra tíma við uppskipun. Ég á eftir að missa af þessu öllu, því miður og vera þess í stað í alsnægtum og leti í þessu landi þar sem rauðvín fossast útúr krönunum og fólkið sem bölvar mér gerir það á einhverju hrognamáli sem ég nenni ekki einu sinni að koma mér inn í! En sennilega er þessi kreppa sem núna virðist ríða yfir þjóðina og mér skilst (og leiðréttið fáfræði mína og vankunnáttu) að sé afleiðingar af mikilli þenslu sem lítil innistæða var fyrir auk samdráttar á erlendum mörkuðum eða eitthvað sem maður með félagsvísindamenntun á erfitt með að skilja, sé svona svipað dæmi og þegar ég er búinn að vera fullur í fjóra, fimm daga í röð, manna glaðastur við að bjóða ungpíkum í glas á barnum og vakna svo upp, óglatt, baugóttur og kominn með yfirdráttinn á kaf. Þá fara yfirleitt í hönd dagar iðrunar og sjálfsvorkunnar, þar sem ekkert sterkara en vatn er sett inn fyrir mínar varir. Hugsanlega verður það jólamáltíðin í ár á mörgum heimilum: vatn og hrökkbrauð!
![]() |
Ríkið eignast 75% í Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.