Das Verzauberte licht

Skrapp á barinn á horninu til þess að athuga hvort norðmaðurinn sem vinnur þar væri að vinna en ég skiptist stundum á athugasemdum við hann yfir glasi.  Hann var í frí svo ég staulaðist aftur heim.  Það byrjaði að rigna.  Hörku haustskúr svo ég rennblotnaði á augnabliki og kom inn með hárið ofan í munn og fötin límd við mig.  Allt við það sama þegar ég kom aftur - verðandi frú Kreppa að teikna í gulum kjól með hvíta slaufu um mittið - ég sé það á kjólunum hennar að það er nýr dagur, því að hér eru allir dagar eins.  Fékk senda þýska þýðingu á Í töfrabirtu eftir William Heinesen sem útleggst Das Verzauberte licht.  Með henni fylgdi stutt bréf frá vini mínum sem sendi mér bókina frá Rostock að ég ætti að lesa hana til þess að bæta þýskuna mína.  Svo nú sit ég í rigningunni í Firenze og blaði í Færeyskri bók á þýsku í nokkra metra fjarlægð frá staðnum þar sem helstu stórmennum endurreisnarinnar var holað niður.  Og læt mér leiðast.  Búinn fyrir löngu að gefast upp á því að reyna að ná sambandi við verðandi frú Kreppu þegar hún er svona niðursokkinn í að teikna og sá eini sem er inni á msn hjá mér er hraðlyginn Kúrdi sem getur ekki komið út úr sér einni setningu nema með því að ljúga alla veganna tveimur atriðum.  Oftast hef ég gaman af svona fýrum en í kvöld nenni ég ekki að eiga samskipti við einhverja kjána.  Finnst að ég ætti að lesa Prinsinn eftir Machiavelli, hann sefur næstum upp í hjá mér, svo nálæg er gröf hans.    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Það er gott að þú ert í töfrabirtu Heinesens. Færeyska birtan svíkur engan, jafnvel Þjóðverjar geta ekki eyðilagt hana. Auf wieder sehen.

Bergur Thorberg, 29.9.2008 kl. 21:23

2 Smámynd: Kreppumaður

Hef heyrt að þjóðverjar hafi vandað jafn vel til verka við að þýða Heinesen og að útrýma gyðingum.  Held samt að birtan hans Heinesens lýsi betur og lengur en ljóskastararnir í Auswitz.

Kreppumaður, 29.9.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband