Kreppuflokkurinn - atlaga að lýðræðinu

Þar sem ég sit hérna steinsnar frá gröf Machiavelli, í fæðingarlandi fasismans, þar sem ennþá spilltir forsætisráðherrar fara með skammvinn völd og les fréttir og blogg frá Íslandi, þar sem fólk telur sig hafa farið að sofa í lýðræðisríki en vaknað upp við einræði, íhuga ég fyrir alvöru þátttöku í stjórnmálum.  Í fyrstalagi vegna þess að mér leiðist og fæ litla athygli hérna á heimilinu en þó fyrst og fremst vegna þess að mér sýnist að nú sé að renna upp gósentíð fyrir dáðalausa einstaklinga með vingulseðli.  Mér sýnist á öllu að Íslensk stjórnmál séu alfarið farin að snúast um að hygla frændum sínu eða að koma höggi á þá sem valdhöfum er illa við.  Koma sem flestum og þyngstum höggum á þá sem ekki vilja dansa eftir púkablístru hins upplýsta einræðis sem virðist ríkja í heimalandi mínu.  
 
Kreppuflokkurinn ætlar því að fara að taka til starfa og bjóða fram í næstu alþingiskosningum.  Ég var líka búinn að lofa Bergi í kommentakerfinu hans að leyfa honum að ráðskast með Ísland að vild í fjarveru minni.  Sérstaklega þegar ég er drukkinn.  En sem komið er er ekkert á stefnuskrá flokksins nema að ná niður verði á rauðvíni og kaffi, gefa þurfalingum og hreppsómögum sem brátt munu skipta þúsundum, súpu og brauð og koma bloggvinum í sem bestu og arðbærustu embætti sem þjóðin hefur upp á að bjóða.  Þetta er einföld og ágæt stefnuskrá sem höfðar til flestra og ætti að gefa okkur svona 40 þingsæti næst þegar verður kosið.  Og þá legg ég niður lýðræðið tímabundið að hætti Mussolinis, svona rétt á meðan ég er að koma þjóðinni í gegnum verstu kreppuna.  Búið ykkur undir tímabil fjöldafunda þar sem svartklæddur múgurinn þarf að hilla mig dauðadrukkinn að slefa í ræðustól.  Ég efast um að nokkur muni taka eftir því að breytt hafi verið um karlinn í brúnni!

mbl.is Glitnir hefði farið í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Lýst vel á stefnuskrána. Count me in og ef allt fer í hundana samt, sleppum við oinu í fyrsta enska orðinu.

Svanur Gísli Þorkelsson, 29.9.2008 kl. 23:15

2 Smámynd: Kreppumaður

Þú ert hér með útnefndur utanríkisráðherra efni flokksins og þar afleiðandi verðandi formaður öryggisráðs sameiniðuþjóðanna nema að þú viljir frekar verða yfirmaður leyniþjónustunnar.  Og ef allt fer illa enda ég eins og ljós lífs míns og átrúnaðargoð, hangandi öfugur á löppunum á einhverju torgi í einhverjum útnára.  En það er áhætta sem vert er að taka.

Kreppumaður, 29.9.2008 kl. 23:45

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Eigum við ekki að hittast í Nice á Frakklandi og spjalla nánar um þetta. Þú hefur ekkert við að vera þarna í Músólínisdraugahverfinu hvort eð er.

Svanur Gísli Þorkelsson, 29.9.2008 kl. 23:58

4 Smámynd: Kreppumaður

Nice þekki ég mjög vel enda bjó ég þar um tíma.  Mundi mæla með bakaríi sem er þar rétt fyrir utan miðbæinn þar sem gamlir orginalar hittast til þess að drekka sig fulla yfir bakelsi, ef ég myndi hvað það heitir.  Nice er reyndar uppáhalds borgin mín og ég mæli með homma veitingastað í gamlahverfinu þar sem þjónarnir eru í dragi og matseðillinn er bundinn inn í gamlar Tinnabækur.  Staðurinn heitir ,,hjá mömmu" á frönsku og er í lítilli þröngri hliðargötu.  Ef þú hefur ekki fundið þennan stað nú þegar þá er það vel þess virði að þefa hann uppi.

Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 00:08

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hva, helv.. skaut ég þá beint í mark.

Ég læt þig vita þegar ég skrepp þangað og þú getur kannski skotist. Ég tékka á hjá mömmu. þar fæst jafnan besti maturinn á Íslandi. Nú er að athuga hvort það stenst á Frakkandi.

Svanur Gísli Þorkelsson, 30.9.2008 kl. 00:22

6 Smámynd: Kreppumaður

Ef þú vilt að kynvillingar með hárkollur eldi fyrir þig þá er ,,hjá mömmu" í Nice rétti staðurinn.  Svo eru líka áhugaverðir goth-klúbbar þar.  Hvernig í fjandanum veit ég þetta?  Hafði ég nákvæmlega ekkert að gera þegar ég var þar?

Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 00:52

7 identicon

Verð með engin spurning, hylla blindfullan slefandi sjálfsdýrkanda að halda ræðu, feels like home!

Svanur í utanríkismálin gott gigg það! Vonandi eitthvað embætti laust fyrir geðvonda ofurskutlu........

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 08:45

8 Smámynd: Kreppumaður

Það er hefð fyrir því að kerlingar eins og þú fari í félagsmálaráðaneytið.  Er vanafastur og held í hefðir.

Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 10:01

9 identicon

Damn, gat nú verið að ég endaði í félagsmálunum enn eina ferðina. Losna víst seint þaðan, en kannski kreppuflokkurinn reddi þessu!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 10:16

10 Smámynd: Kreppumaður

Við kannski leggjum bara niður velferðarkerfið? 

Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband