30.9.2008 | 10:10
Þegar ég fór á hausinn
Ég man eftir því þegar ennþá voru ávísunarhefti í umferð. Þá átti ég það til að gefa út ávísanir sem enginn innistæða var fyrir á barnum á föstudagskvöldi með þá veiku von í brjósti að snemma á mánudegi mundi allt bjargast. Svo var hressilega drukkið. OG eftir helgi fóru að berast gulir miðar með kröfum um greiðslu skulda. Og ef þeim var ekki svarað, aðrir hvítir þar sem hótað var að íbúðin á Þórsgötu (sem ég bjó þá) yrði seld hæstbjóðandi til þess að bjarga bankanum frá brennivínsskuldum mínum. En aldrei fór ég beint á hausinn þrátt fyrir þetta kæruleysislega líferni. Ég komst alltaf á réttan kjöl aftur, fyrir einhverja heppni eða með aðstoð góðra manna. Sem oftast voru tilbúnir að hjálpa mér að auka á skuldastöðu mína með því að setja nafnið mitt neðst á eitthvað blað. Nú eru þessir dagar löngu liðnir og þótt að ég hafi ekki unnið launa vinnu í hálft ár, allir bankareikningar gildir. Og núna glotti ég að þeim sem virðast hafa drukkið of mikið í góðærinu á kostnað tékkheftisins.
![]() |
Telur Stoðir ekki fara í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það sem ég er alltaf að segja það borgar sig ekki að þræla og púla!
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 10:17
Á ég nú að skrifa upp á fyrir þig? Ég kann alveg að lesa gegnum línurnar, kæri vin. Eða ertu farinn að selja aflátsbréf?
Bergur Thorberg, 30.9.2008 kl. 10:20
Bergur, það væri nú gott ef þú sendir mér eins og nokkrar myndir gerðar úr kaffi, ég gæti reynt að selja þær á torginu hérna! Sem mín verk. Þá slepp ég líka við það að þræla og púla en vinna hefur víst aldrei borgað sig, nema ef hún er illa launuð og snýr að því að skapa eitthvað sem er ill seljanlegt, eins og list...
Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 10:28
Úff fékk nett flassback þegar heftin voru í tísku, eins og greinarhöfundur skrifar að þá man ég eftir mánudögum og þriðjudögunum þegar gulu miðarnir náðu niður í gólf, sé reyndar mikið eftir því að hafa ekki orðið á undan Óla í Olís að skrifa blankó tékka og fest kaup á Olís.
Guðjón Þór Þórarinsson, 30.9.2008 kl. 11:09
Ef þú hefðir eignast Olís værir þú ekki í góðum málum núna. Allt að fara til fjandans og þú þyrftir eflaust að setja allt lausafé í skjóða og laumast út bakdyrameginn til að sleppa við reiðan múginn og flýja til KArabískahafsins með gróðann...
Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.