30.9.2008 | 10:25
Næturfundir
Þegar ég bjó síðast í Reykjavík hélt ég oft svona næturfundi eins og Jón. Þeir sem birtust hjá mér eftir að rökkva tók voru reyndar ekki af sama kaliberi og þeir sem funduðu með Jóni en ég get þó státað af einum varþingmanni með heimskulega pólatískasannfæringu sem síðar meir sendi hann í 15 sæti á lista í prófkjöri og batt enda á feril hans í stjórnmálum, fínni varð félagsskapurinn ekki. Oftast voru þetta einhverjir mis vel og illa heppnaðir listamenn og glyðrur sem vildu reyna að hjálpa mér til betra lífs. Verð reyndar að opinbera það hérna að í fásinninu sakna ég örlítið svona næturfunda. Ekki kvennanna, því að í þeirra stað er komin verðandi frú Kreppa, frekar þessara mislukkuðu vina minna. Þeir verða ekki svo auðveldlega bættir hérna í landi pastaætna og flagara með gullkeðjur um hálsinn sem virðast allir búa heim hjá mömmum sínum, komnir á fertugsaldurinn, gólandi á eftir hverjum einasta kvenmannsbelg, jafnvel þótt að hún haldi um arm heitmanns síns...
Þetta blogg fær mig þó til þess að finnast ég aðeins minna einn...
![]() |
Kallaði ráðherra og þingmenn á fund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.