2.10.2008 | 13:39
Massacretube.com
Þar kom það, stóra tækifærið mitt til þess að auðgast og koma með aukið fjármagn inn í kreppulúið Ísland. Ég stofna einfaldlega vefinn massacretube.com en þangað geta allir geðveikir aular sent inn myndbönd með sér að skjóta úr skammbyssum, hylla Hitler, hrækja á myndir af Bush, og æla út úr sér allskonar vafasömum pólitískum og jafnvel kynferðislegum áróðri. Þetta verður kjörlendi perverta og undirmálsmanna til þess að miðla og skiptast á skoðunum. Og lögreglan þarf ekki að leita langt yfir skammt, bara að hafa einn mann á vakt, liggjandi yfir vefnum til að spotta mestu rugludallanna svo hægt sé að gera þá óskaðlega áður en þeir fara að brýna axir eða hlaða pístólur. Allir græða en þó ég mest.
![]() |
Ósmekklegur hrekkur á YouTube |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
www.shockingtube.com
LOL (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 14:43
Nei hljómar ekki vel !
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 14:45
Hvaða hvaða... eini möguleiki minn til að verða ríkur!
Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 16:44
Ríkur hélt ekki að það væri eftirsóknarvert nú á dögum, eða ertu ekki búinn að heyra hvernig þessum köllum er að reiða af?
Best að eiga ekki neitt í svona Kreppu, þá er einskins að sakna.....
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 16:50
Það er rétt. Eiga ekkert sem hægt er að láta taka af sér upp í gjaldþrotaskiptin!
Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 17:54
Akkurat !
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.