Lögreglan lumbrar á Bubba!

Nú getur lögreglan séð sér leik á borði og hefnt hvernig farið var með þá í laginu ,,lög og regla" og mætt á svæðið með skildi og kylfur og gasað, járnað og barið Bubba og sýnt honum í eittskipti fyrir öll hvað gerist fyrir þá sem voga sér að setja sig upp á móti stjórnvöldum.  Gott ef þeir hafa ekki þá afsökun þegar þeir henda honum svo út úr grjótinu (þegar þeir muna eftir því að láta hann lausan) bláum og bólgnum að ,,skýrslur segi: hann var alltaf að detta..."   Vitiborið fólk ætti að halda sig fjarri Austurvellinum á miðvikudaginn en kveikja frekar á sjónvarpinu, þessu verður eflaust lýst beint!

mbl.is Bubbi boðar til mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég mun mæta med bubba og láta berja a mer........ þeir geta barið mig enn ekki brotið   kv Agnar trukkabilstjori

mikkki (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 20:00

2 Smámynd: Kreppumaður

Frábært.  Ef þið verðið barðir tveir, verður pottþétt útsending á ruv.is.  ég horfi á ykkur með popp á netinu.  Ætla að halda með ykkur!  Það verður svona eins og að halda með Færeyingum í fótbolta!

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 20:03

3 identicon

Eða Íslandi!

Johnny (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 20:08

4 Smámynd: Kreppumaður

Það er rétt, frændur okkar í féeyjum eflaust fyrir ofan okkur á styrkleikalista.  Þeir geta nú í fyrsta skipti litið niður á okkur...

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 20:12

5 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Ég vissi ekki betur en að Bubbi sé Sjálfstæðismaður. Hann lýsti því yfi rétt áður en það fór að síga á ógæfuhliðina í efnahagslífinu. 

.... 

Brynjar Jóhannsson, 2.10.2008 kl. 20:35

6 Smámynd: Kreppumaður

Þá tuska þeir hann bara örlítið en berja þess meira bara grey Árna trukkastjóra og hugsanlega einstaka forvitin bréfbera sem leið eiga hjá.  Rétti dagurinn fyrir þig til þess að hringja þig inn veikan! 

Held að Bubbi sé eins og svo margir aðrir mellist á milli flokka án þess að lesa smáaletrið.  Enda er hann líka lesblindur. 

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 20:38

7 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hahahah...

Ég held að það sé málið hann gat ekki lesið hvað sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir... 

Brynjar Jóhannsson, 2.10.2008 kl. 21:04

8 Smámynd: Kreppumaður

Sem og margir aðrir kjósendur.

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband