Skipt um ríkisborgararétt

Ég ætla að segja mig úr Íslenska ríkinu og sækja um sem ríkisborgari í Andabæ.  Þar er efnahagsástandið tryggt.  Enda treystir eini milljarðamæringurinn ekki bönkunum fyrir sínu fé.  Nei, hann geymir það í risavöxnum sparibauk og baðar sig upp úr því daginn út og inn.  Ef allir hefðu farið að hans fordæmi og bara grafið silfur sitt í jörðu að fornum sið eða geymt undir rúmdýnum, hefðu bankarnir ekki getað þanið sig það mikið að þeir sprungu eins og blaðra.  Svo nú þarf ég bara að finna hvar Andabær er staðsettur.  En ég hef vísbendingu.  Hann er fjögurþúsundkílómetra frá Fjarskanistan.  

mbl.is Miklir erfiðleikar blasa við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hérna, ertu til í að hóa í mig, ég þarf að fara að flytja líka.

Ragga (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Kreppumaður

Er að reyna að googla Fjarskanistan en finn bara Kasakstan.  En þetta hlítur að hafast.  Læt þig þá vita.

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 20:47

3 identicon

Töff. Eins lengi og ber brjóst eru mönnum bjóðandi þá er ég til.

Ragga (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 20:49

4 Smámynd: Kreppumaður

Í Andabæ eru allir naktir að neðan en ekki ofan.  Þú verður utangarðs þar líka.  En þá má reyna?

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 20:55

5 Smámynd: Einar Sveinn Ragnarsson

þetta er bara skot í myrkri en er Andabær ekki upprunin í Danmörku? Hins vegar ef að helmingurinn ætlar að vera berbrjósta og hinn helmingurinn ber að neðan þá skal ég alveg flytja með ykkur.

Einar Sveinn Ragnarsson, 2.10.2008 kl. 21:06

6 Smámynd: Kreppumaður

Ef Andabær er í Danmörku þá hafa þeir eflaust lokað honum um leið og Kristjaníu.  Sérstaklega ef nakið lið hefur verið að spranga þar um.

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:15

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

djöfull væri ég til í að hafa þig hérna í 101 núna! myndi draga þig í labbitúr í snjónum!!...........og gætum svo hlýjað okkur við barinn á Bölstofunni :)

Heiða B. Heiðars, 2.10.2008 kl. 21:32

8 identicon

Utangarðs, það var þá!

Ragga (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 21:35

9 Smámynd: Kreppumaður

Er snjór í Reykjavík?  Ofan á alla kreppuna og barlóminn? 

Ertu vissum að eftir að hallærið skall á að öll þín skópör séu ekki stagbætt og þú varla með nóg klink fyrir glasi á Bölstofunni?  Ég mundi kannski vera herra og bjóða? 

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:35

10 Smámynd: Kreppumaður

Best að vera utangarðs... Nema maður sé í Utangarðsmönnum með Bubba (hlær aulahlátri yfir þessari aumu fyndni sinni)...

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:36

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Skórnir duga eitthvað lengur :) Held ég eigi eitt eða tvö pör til skiptanna eftir góðærið......og klink :)

Snjóar og snjóar og snj...........................

Heiða B. Heiðars, 2.10.2008 kl. 21:47

12 Smámynd: Kreppumaður

Fátt betra en að vera fullur inni á bar í snjó.  Hugsanlega verð ég í Reykjavík 6-10. nóv og svo aftur eftir 15. des.  En það er ennþá allt óráðið og fer eftir ýmsu eins og því hver muni hafa keypt Ísland?  Hvort að krónan sé ennþá til?  Hvort að fasismi hafi endanlega verið tekinn upp?  Og hvort ég verði kannski eftirlýstur óvinur ríkisins fyrir það að blogga í leiðindum mínum?

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:52

13 Smámynd: Kreppumaður

Ég á við - þá get ég skakklappast með þér á bar.

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 21:53

14 identicon

Þið eruð hresst lið sem gaman væri að flytja með  - eða bara labba í snjónum - og soleis!

Andabær er samt ammrískari en flest annað. Danir passa bara svo þar.

Trísa (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 21:59

15 Smámynd: Kreppumaður

Guð minn góður, einhver hefur kallað mig hressan!  Þú hlýtur að eiga við Heiðu.  Hún er hress og hávær og svíkst alltaf um að hringja þegar hún segist ætla að hringja... 

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 22:01

16 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Áts! Sofnaði!! Og ég er sko ekkert hress og hávær þessa dagana!

Alveg að sofna núna :)

Heiða B. Heiðars, 2.10.2008 kl. 22:21

17 Smámynd: Kreppumaður

Það er rétt.  Þú ert langt frá þínu besta.  En verður vonandi komin á flug þegar ég sé þig næst.

Kreppumaður, 2.10.2008 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband