3.10.2008 | 23:44
Prringur
Nú er ég pirraður. Ekki gat verðandi frú Kreppa látið sér detta svona snilld í hug! Nei, þess í stað er hún föst í því að teikna brúðarkjóla. Brúðarkjóla sem eru eitthvað þing sem er eldgamalt og enginn mun nota því að það hefur enginn efni á því að gifta sig í því árferði sem nú ríkir. Fólk er frekar í því að skilja ef marka má fréttir. Sérstaklega á Íslandi þar sem fólk byrjar brúðkaupsveisluna á framhjáhaldi eða hótunum um að kaupa aðskilin rúm. Annars er verðandi frú Kreppa hætt við að fara inn í draumalandið og búin að fyrirgefa mér koníaksdrykkjuna sem gerir mig illa lyktandi og fráhrindandi og er þess í stað sest hérna á móti mér að lesa bók um hvað - brúðarkjóla!
![]() |
Alltaf í sambandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.