Móðuharðindin nýju

Og þegar maður hélt að ástandið gæti ekki versnað (en vinir okkar helvítis-Bretar hjálpuðu til með það) blasir við ótryggt ástand í atvinnulífinu með fjöldauppsögnum og almennri vesöld.  Mér sýnist að ástandið hafi ekki verið svona slæmt síðan í Svartadauða eða Móðuharðindum en þá voru það náttúruhamfarir og pest frá útlöndum (örugglega frá helvítis-Bretum) sem þá lömuðu þjóðina og lögðu hana í gröfina.  Og nú eru það helvítis-Bretar sem vilja okkur feig.  Ég ætla nefnilega að hætta að kenna auðmönnum, bankastjórum og Davíð um ástandið.  Þetta er bara allt ein skipulögð hefndaraðgerð af hálfu helvítis-Breta, til þess að jafna um okkur eftir ótal ósigra í Þorskastríðum.

mbl.is Óvissa með uppsagnarfrest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband