Ég slít stjórnmálasambandi mínu við Breta

Ef við erum stimplaðir sem hryðjuverkamenn, hversvegna erum við þá að reyna að halda einhverju vitsmunalegu og siðuðu stjórnmálasambandi við helvítis-Breta?  Kalla þá á teppið og skamma eins og óþæga skólastráka, þegar við eigum að veitast að þeim í skjóli myrkurs, stinga og höggva og brenna inni.  Mig minnir að við höfum farið í eina eða tvær þannig aðfarir að Enskum á 16. öld?  Það dugði til þess að halda skítugum krumlum þeirra frá skreiðinni okkar, í bili.  Við eigum að slíta sambandinu og hætta að kaupa eyskarvörur.  Ég ætla að leggja mitt að mörkum.  Ég slít núna formlega stjórnmálasambandi við Breta.  Búinn að drepa í síðustu Benson & Hedges, henda út úr tölvunni allri popptónlist, eyða báðum Bretunum sem ég þekki af msninu og ætla alveg að hætta að horfa á Enska boltann.  Nú verður það sá Ítalski.  Þangað til þeir hætta að koma fram við okkur eins og óbreytta Al-Qaeda-liða... 

mbl.is Sendiherra kallaður á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hammurabi

Skrifa undir allt sem þú segir nema það síðasta, þetta verður ekki fyrirgefið í bráð ef nokkurntíman. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir ráðast á okkur með ofbeldi, né verður þetta það síðasta.

Hammurabi, 9.10.2008 kl. 20:47

2 Smámynd: Kreppumaður

Grátandi kveð ég enska boltann en allt annað hjá þessari óþverraþjóð get ég sleppt...   Þangað til við fyrirgefum þeim og þeir verða bestu vinir okkar á ný, til þess að stinga okkur í bakið!

Kreppumaður, 9.10.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Grátandi kveðja íþróttastjörnurnar enska boltan líka innan tíðar... . Ætli Gamli Kikk And RÖNN fótboltann nái ekki aftur völdum.. 

Brynjar Jóhannsson, 9.10.2008 kl. 21:45

4 Smámynd: Kreppumaður

Eflaust verður bara kikk end rönn hjá þeim...  En sú sjónmengun mun ekki ná til mín...  Nema eitthvað mjög róttækt gerist.

Kreppumaður, 9.10.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband