10.10.2008 | 12:55
Faldi sig fyrir hryðjuverkamönnum
Auðvitað fór þessi Breti í felur. Hann hefur sé það í fjölmiðlum að í stað þess að vera í heimsókn hjá friðelskandi þjóð, væri hann mættur í eitthvað hryðjuverkahreiður, þar sem allir væru að plotta aðför að löndum hans. Svo skiljanlega hefur hann ekki viljað láta mikið á sér bera. Enda Bretahatur orðið svo magnað á Íslandi að ég er ennþá undrandi á því að enginn hafi brennt sendiráð þeirra á meðan ég svaf? Kannski fólk brenni það í dag? Man nú eftir einhverjum heimskingjum sem hentu flösku fullri af bensíni í Bandarískasendiráðið bara af því að þeim fannst það eitthvað svo svalt að hatast út í Kana, nú ættu þeir að skvetta bensíni á það Breska. Ég efast um að þeir fengju fyrir það dóm. Enda búið að stimpla okkur öll hryðjuverkamenn og fólk gæti því farið að lifa sig inn í það hlutverk.
![]() |
Bretinn kominn fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Stilltu þig, gæðingur! Það er raunverulega til fólk sem tekur svona hálfkæringsgrín sem alvöru. Tekur jafnvel mark á'ðér
Ég held þig langi varla til að hafa sprengjuuppátæki e-rs 1/2-vita á samviskunni. Haltu samt endilega áfram að spjalla um landsins 'gagn og nauðsynjar'.
H G, 11.10.2008 kl. 14:52
Ég er stilltur. En ég á von á því að fólk sé nú ekki alveg forheimskt, þótt að maður viti aldrei með alla?
Kreppumaður, 11.10.2008 kl. 14:59
Kreppumaður! Visssulega er til fólk með viti - svona innanum - Breytir ekki því að einhver allra hinna gæti farið að ábendingum þínum. Nóg um það - og rétt að hættan er ekki mikil !
H G, 11.10.2008 kl. 15:09
Við skulum vona að þeir vertsgefnu og áhrifagjörnustu séu einhverstaðar að taka myndbönd af sér að hlaða byssur en ekki að lesa blogg...
Kreppumaður, 11.10.2008 kl. 15:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.