10.10.2008 | 14:54
Reyni að hætta krepputali
Verðandi frú Kreppa er búin að segja mér að fara út að ganga. Niður á næsta bar og fá mér bjór eða eitthvað því að það valdi mér taugaveiklun og hárleysi að hanga yfir tölvunni og bölvuðu efnahagsástandinu á Íslandi. Ef það væri ekki rigning þá mundi ég hendast niður á bar en í þessum dumbungi nenni ég því ómögulega. Þessi ský eru myrkari en óveðursskýin yfir Íslandi... Þar byrjaði ég aftur. Á því að bölva ástandinu á Íslandi. Ég sem ætlaði að reyna að sleppa því... En það er svo erfitt. Allar fréttir, sms, mailar fjalla bara um eitt og það sama - allt er að fara til fjandans. Best að ég skjótist út og kaupi í kvöldmatinn. Ég ætla að dunda mér við það í dag að elda margréttamáltíð og drekka gott vín og hlusta á tónlist og reyna að vera orðinn hífaður þegar ég fæ fréttirnar af því að Ísland hafi verið tekið upp í skuldir og sé eign prinsins af Borneó. Hann á víst ennþá slatta af aur.
Athugasemdir
Þú ættir að hlíða henni, þetta er gott ráð.
Ég nenni ekki þessum fréttum og mig langar í bjór.
Ragga (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 15:01
Ég held að það sé gott að vera listamaður í þessari kreppu. Þeir eru hvort eða er vanir því að vera blankir. Fæ mér bjór þér til samlætis áður en ég versla...
Kreppumaður, 10.10.2008 kl. 15:06
Nákvæmlega!
Ég þarf bara að drattast til að kaupa mér bjórinn og ég er löt.
Ragga (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 15:13
Best að spara alla orku í kreppunni og gera sem minnst. Ég er hættur að hugsa.
Kreppumaður, 10.10.2008 kl. 15:22
Ég þarf að mála, það er það eina sem ég ætla að gera.
Ragga (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 15:44
Kominn heim. Nú þarf ég bara að elda...
Kreppumaður, 10.10.2008 kl. 16:28
Ég mála bara, bjórlaus. Þvílíka ástandið.
Verði þér að góðu.
Ragga (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 16:50
Vond að hafa ekki bjór með málverkinu, en ég veit það að ónefndur listamaður sem er skyldur mér komst oft í annarlegt ástand við að sniffa leysiefnin... Þó að það sé eflaust ekki til eftirbreytni.
Kreppumaður, 10.10.2008 kl. 18:37
Jaaaaá, held ég sé ekki alveg svo illa stödd.
Ragga (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 19:42
Sem betur fer ekki. Þá þyrftirðu annars af fara að hanga á aa-fundum...
Kreppumaður, 10.10.2008 kl. 21:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.