15.10.2008 | 14:15
Ég drep ykkur öll!
Þetta eru stjórnunarhæfileikar að mínu skapi. Ekki vera með einhver launaviðtöl og hvað þau nú hétu viðtölin sem ég þurfti að taka tvisvar á ári og snérust um vellíðan á vinnustað. Ég hefði betur bara sagt: ef þú ert með múður, þá verður þú ekki rekinn, heldur drepinn! Þá hefði enginn voga sér að biðja um launahækkun. Svona á að stjórna. Svona á Geir að koma fram við þjóð sína: ef þið hættið ekki þessu helvítis nöldurbloggi, farið þið öll í gálgann.... Fólk ber virðing fyrir svona mönnum. Fólk hlýðir og leggur sig fram ef það á það á hættu að tapa því sem ekki verður keypt í Bónus - lífinu. Ef þið skrifið ekki athugasemd við þessa færslu og verðið sammála mér þá kem ég og drep ykkur öll!
Hótar liðsmönnum dauða ef þeir falla um deild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
sammála
Gunnar (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 15:52
Gott, Gunnar, þér verður þyrmt.
Kreppumaður, 15.10.2008 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.