Serbavisíón

Þetta er alveg eins og þegar við ætlum að sigra Serbavisíón með einhverjum hallærislegum poppsmellum sem þjóðin heldur alltaf að séu bestu lög í heimi.  Og þegar það var fullreynt með það að frá þeirri keppni riðum við ekki feitu hrossi, þá var bara reynt við þá næstu.  Að fá að vera bergmál frá röddu Bandaríkjamanna í Öryggisráðinu.  Og ekki gekk það vel.  Engin 12 stig til okkar í þetta sinn.  Töpuðum fyrir Austurríki og Tyrkjum.  Mér finnst við alltaf vera að tapa fyrir Tyrkjum.  Það var hrein heimska að afnema lögin um að Tyrkir væru réttdræpir á Íslandi.  Þeir kom fram við okkur af meiri virðingu þá og leyfðu okkur meira að segja einu sinni að vinna sig í fótbolta.  Þeir hefði þá líka gefið okkur eftir sætið sitt í Öryggisráðið.  Það hefði glatt Bandaríkjamenn.

mbl.is Ísland náði ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Leim útkoma en fyrirsjáanleg.

Meiri minnimáttarkenndin að drepa okkur alltaf.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.10.2008 kl. 17:25

2 Smámynd: Kreppumaður

Ég veit, það er ein af þjóðaríþróttunum, minnimáttarkennd, sjáðu mig bara!!!

Kreppumaður, 17.10.2008 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband