21.10.2008 | 21:55
Ég fékk ekki kynfræðslu
Ég var aldrei skáti. Þess vegna vissi ég ekkert um kynlíf þegar ég varð unglingur. Og sennilega þess vegna vissi ég ekkert um getnaðarvarnir og varð því faðir tuttugu og tveggja ára. Það var fyrir daga netsins og enginn möguleiki að leita sér þekkingar á getnaðarvörnum upp á eigin spýtur. Ætla samt ekki að harma það að hafa orðið pabbi. Á kjaftforan son sem ber litla virðingu fyrir mér og lætur mig heyra eitt og annað sem ég hefði aldrei látið út úr mér við föður minn. Og það er eflaust þess vegna sem mér þykir svona vænt um son minn. Hann er bara yngri útgáfan af hortuga mér. Breskir skátar eiga því eftir að missa af mikilli gleði sem fylgir því að geta hangið með yngri útgáfunni af sjálfum sér.
Skátar fá kynlífsráðgjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Núú, þeir voru þá aldrei viðbúnir, tóm lygi eins og í H.J. í gamla daga hm.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 22:11
Með Baden-Powell sem leiðtoga getur maður ekki verið viðbúinn, hann var lokaður af eins og refur í greni í Mafeking...
Kreppumaður, 21.10.2008 kl. 22:37
Skátar? Frussssssssssssssssssssssssss
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2008 kl. 23:18
Þú ert nú alltaf að skátast í mér óumbeðin...
Kreppumaður, 21.10.2008 kl. 23:25
Spurning hvort þú lærir þá eitthverja góða siði af henni Jenný skátaforingja.......
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 10:10
Nei bara ósiði eins og að hætta að drekka...
Kreppumaður, 22.10.2008 kl. 16:31
Það nær náttúrulega ekki nokkurri átt eða eitthvað........
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 19:32
Bölvuð frekja í kerlingunni alltaf hreint...
Kreppumaður, 22.10.2008 kl. 19:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.