18.10.2008 | 13:21
Breima
Þá veit ég það. Rauðvín og Bee Gees í botni og ég fæ aldrei hjartaáfall. En til hvers er það? Rauðvín er gott en Bee Gees er versta hommavæl allra tíma. Bara það að hugsa um þessa falsettukónga gerir það að verkum að ég fæ óbragð í munninn og viss líkamspartur skreppur saman og hverfur. Þá er betra að hjartað hætti að slá ef svona kattar breim á ekki að vera í eyrunum á mér alla daga. Svei.
Bee Gees hollir hjartanu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hmm... lastu fréttina? Þú ert eitthvað að misskilja þetta allavega. Það er hvergi talað um að tónlist BeeGee's hafi góð áhrif á hjartað á meðan það slær ennþá
Árni Viðar Björgvinsson, 18.10.2008 kl. 19:44
Það er rétt. Og ofan á allt annað þá fór ég inn á einhverja sjoppu og hvað var í spilaranum? Staying alive... Þá sá ég þetta margfræga ljós við endann á göngunum...
Kreppumaður, 18.10.2008 kl. 19:50
Hahahaha... vondur dagur í dag :D
Árni Viðar Björgvinsson, 18.10.2008 kl. 19:53
Allir dagar þegar Bee Gees berast mér til eyrna eru eins og dagar í víti, í bestafalli...
Kreppumaður, 18.10.2008 kl. 21:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.